Kanínuholan - The Rabbithole

Kanínuholan - The Rabbithole

Share

17/05/2026

Kanínuholan bregst við hægrisveiflunni og er með bokameðmæli fyrir kjósendur og nýkjörna borgar og bæjarfulltrúa

13/05/2026

Virkilega gaman að taka þátt í Global Book Crawl aftur og virkilega fallega að þessu staðið hjá Skálda bókabúð. Kanínuholan þakkar bókabúðunum sjö fyrir samstarfið nú og auðvitað góðar heimsóknir bókaröltara. Hér má sjá sigurvegara bókaröltsins en við óskum Völu innilega til hamingju með sigurinn 🥰😍😘

Sigurvegari í Global Book Crawl bókabúðaröltinu 2026 er Vala Birna Árnadóttir 🎉 Hún hlýtur að launum glæsilega vinninga frá öllum sjö bókabúðunum sem tóku þátt. Við þökkum fyrir frábæra þátttöku og vonum að við sjáum ykkur öll á röltinu á næsta ári 📚
Bókin ehf. - Antikvariat
Bókumbók
Gamla Bókabúðin
GARG-Bókabúðe
Kanínuholan - The Rabbithole
Reykjavik Books and Chocolate
Skálda bókabúð

Photos from Kanínuholan - The Rabbithole's post 03/05/2026

Kanínuholan er lokuð í dag 3. Maí vegna mæðgnaferðar bóksalans til Búdapest. Við mamma notuðum auðvitað tækifærið og heimsóttum meðal annars Massolit bókabúðina, bóksalinn hafði hins vegar farið öfugu meginn fram úr þannig stoppið var stutt og ég fór aldrei þessu vant tómhent út 🐇✨💫 🐰

Photos from Kanínuholan - The Rabbithole's post 30/04/2026

Systur bókabúð Kanínuholunnar i Edinborg heitir Gyllti hérinn — hún er nýlega búin að flytja innan Stockbridge á St. Stephen Street sem er nú fræg af endemi í íslenskri menningarsögu. Þessi bókabúð er einkar vel “curated” og starfsfólkið skemmtilegt 🐇✨

Photos from Kanínuholan - The Rabbithole's post 27/04/2026

Rare birds er bókabúð tileinkuð verkum eftir konur og um konur. Karólína rakst á hana af tilviljun þegar við vorum á gangi um Stockbridge, Edinborg á páskadag 🐤🐦‍⬛💛🏴󠁧󠁢󠁳󠁣󠁴󠁿—- Mjög skemmtilegt úrval og við mæðgur gengum allar út með bækur 📚🐇✨

Photos from Kanínuholan - The Rabbithole's post 25/04/2026

Dagbók bóksala: Dásemdin hún Steinunn Eldflaug er ótrúleg smekkkona á bækur og hefur fært holunni margar góðar í gegnum tíðina. Hún kom færandi hendi í dag með þvílíka gullmola sem margir hverjir eru strax komnir í nýjar hendur. Góðir og gamlir grannar úr Stangarholtinu hófu bókaröltið sitt í holunni. Nú svo gleymdi einhver gleraugunum sínum 😵‍💫

Photos from Kanínuholan - The Rabbithole's post 23/04/2026

Það var margt um manninn í holunni á Sumardaginn fyrsta — svo gaman að taka þátt í bókaröltinu annað árið í röð með sjö öðrum bókabúðum og margir voru duglegir að nýta frídaginn til að fylla vegabréfin. Litlu bókabúðirnar gera borgina skemmtilega og litríka. Karólína mín bókabúðarstarfsmaður tók svo púlsinn fyrir mig hjá kollegunum og bar þeim öllum vel söguna .bokabudin .books.and.chocolate #🐇☕️✨

Photos from Kanínuholan - The Rabbithole's post 23/04/2026

Gleðilegt sumar 🌱! Gleðilegt Bókarölt og til hamingju með dag bókarinnar — hér er nóg af vegabréfum, bókum og kaffi ☕️✨💛 Happy summer and happy bookcrawling ☀️💫🐇 📚

Photos from Kanínuholan - The Rabbithole's post 19/04/2026

Einar Ólafsson skáld og bókavörður kom hér að sækja eintakið sitt af Mosab. En hann kom líka færandi hendi með bók sína Sólarbásúnuna sem hann áritaði og fyrstu bók Óskars Árna, Handklæðið í gluggakistunni. Einar Ólafs og Petrína Rós rifjuðu upp gamla takta úr Fylkingunni og við héldum sellufund um vorið og baráttuna! 🇵🇸🕊️🐇

Photos from Kanínuholan - The Rabbithole's post 19/04/2026

Halina Poswiatowska er mögnuð skáldkona sem ég kynntist í gegnum pólskukennarann minn í HÍ og vildi svo vel til að bókin var til hér í holunni. Þvílíkir geimsteinar sem holan geymir og faðir minn erfði mig að, hellir Ali Baba’s bliknar í samanburðinum⚜️👑⭐️

Want your business to be the top-listed Shop in Edinburgh?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Category

Address


68 St Stephen Street
Edinburgh
EH3 5AQ